25nóvember

B.O.B

Back on BLOGCENTRAL
www.blog.central.is/kamo
www.blog.central.is/kamo
www.blog.central.is/kamo
www.blog.central.is/kamo
www.blog.central.is/kamo

Skilduskoðun, breyta í tenglum takk fyrir P(m)entos
25. nóvember 2006 klukkan 03:57
Kamilla Mjöll Haraldsdóttir
Engin athugasemd
19nóvember

Stór dagur í dag !

Ég vil byrja þetta blogg á því að óska skíðaáhugamönnum í Ólafsfirði innilega til hamingju með daginn. Og skíðafélaginu að sjálfsögðu :D

En í dag var einmitt opnað í Tindaöxl í fyrsta skipti á seasoninu, það var þvílíkt gott færi, og klikkað veður. Svona á þetta að vera. -14° til -16°C voru og brakandi nýfallið púður.
Sjálfur Júlli, eða Sigurður Júlíus, a.k.a Siggi hnakki, lét meira að segja sjá sig, þó hann hafi ekki farið fögrum orðum um eins glæsilegan stað og Tindaöxlina sjálfa.
En á morgun ætlar Skíðafélagið að halda upp á fimm ára afmælið sitt, sem var 18. október með kaffisamsæti í skíðaskálanum milli 15:00-17:00, einnig verður opið frá 13:00-17:00. Kjörið tækifæri til að skella sér á skíði og kíkja svo inn í kakó og sætt :D

Gulli fór anars á sjóinn í morgun, þrír hafa komið í land á Sigurbjörginni í þessum túr, og tveir af þeim báðir baader mennirnir. Gulli, Steini og Viktor fóru semsagt í staðin, og taka svona stuttan túr:P

Annars er ég að fara út að labba með Gerðu, maður verður nú að njóta frostsins meðan það er :D

Endiega látið sjá ykkur í Tindaöxlinni á morgun, Frítt í fjallið.

Kv. Kamilla Mjöll
19. nóvember 2006 klukkan 02:47
Kamilla Mjöll Haraldsdóttir
2 athugasemdir
14nóvember

Viđ búum nu bara einu sinni á Islandi common !!!

Kamilla Mjöll Haraldsdóttir er í annað skiptið á ævi sinni veðurteppt heima hjá sér! Já það er margt furðulegt að finna í kýrhausnum.
Rútan fór ekki eina ferð í dag, og útkall í björgunarsveitinni sjúkrabíll fastur í múlanum. 
Við Gulli skruppum í jeppaferð frammí sveit til að athuga með ástandið, á leiðinni sáum við tvö ljós, sem fittuðu svo engan vegin í það að vera á veginum, þar var maðurinn sem kenndi mér að keyra, komin utanvegar, en honum var þó kippt upp.
Allt var í góðu lagi í sveitinni, eða við gátum ekki betur séð.  Svo löbbuðum við frá Hrönn og heim, ég get svo svarið það að ég fór svona helmingi fleiri sref en ég þurfti. Allt í einu uppgvötaði ég það að ég var búin að hlaupa á sama stað með vindinn í fangið. Get ekki neitað því að ég var dauðþreytt þegar ég koma heim:D
Annars ætla ég bara ða vonast til að ég komist inneftir tomorrow enda er ég komin með 72 fjarvistarstig takk fyrir pent!

Jæja matur.
Farið ykkur ekki að voða í veðrinu :D
Kv. Kamilla Mjöll Haraldsdóttir

14. nóvember 2006 klukkan 00:40
Kamilla Mjöll Haraldsdóttir
2 athugasemdir
11nóvember

Arctic Cat!

Í gær gerði ég stórfurðulegan hlut.
Við Kata ákváðum að fara til Ólafsfjarðar með rútunni bara afþví veðrið var svo óvíst. Sem ekki væri frásögufærandi nema hvað, þegar við vorum nýlöggð af stað hringdi Gulli, ég fór út á Dalvík og keyrði Durangoinn Túrbós aftur til Akureyrar:D hehe
Við fórum semsagt á Arctic Cat sleðasýninguna, og shiiiiit. Ég fékk sleðafiðringinn. Og það engan smá. Djöfull sem mig langar í sleðabuxur. Það er nátturlega skilda
Svo fórum við aðeins að keyra um, og fórum í Brynju :D Svo fórum við nú bara að leggja í hann heim, tókum einn hring á Dalvík og svo þrjúhundurð á Ólafsfirði.

Annars er bara rosalega fátt að frétta. Fólk farið að henda upp jólaseríum eins og hver sé að verða síðastur. En það er ekki þannig, það er plenty of time til að setja upp jólaskrautið fyrir jólin. Skreytum tréð í maí.

Við Kata ætluðum að vera rosa menningalegar og fara á Morfís kvöld í Vma um daginn, en við fórum aldrei :D hehe.. vorum bara að horfa á Tvið og Kata nuddaði mig :D

En ég ætlaði nú bara að henda einhverju hérna inn til að halda þessu lifandi.
Hafið það gott =)

Kv. Kamilla Mjöll Haraldsdóttir
11. nóvember 2006 klukkan 20:24
Kamilla Mjöll Haraldsdóttir
3 athugasemdir
07nóvember

"Ţetta er ađ gerast!"

Góðan daginn.
Ég kom með rútunni inneftir í dag eftir Helga-magra fríið og ég átti alveg rosalegt bátt með að halda augunum opnum á leiðinni. Hefði alveg verið til í að sofa þrjá tíma lengur, ef ekki fjóra - fimm :D
Maður verður svona þreyttur ef maður er duglegur og notar fríin í að vinna :D
Fór semsagt að vinna í Stíganda í gær, og eins óvelkomin hef ég aldrei upplifað mig. Vá fólk horfði á mann eins og maður væri mjólkurkex.
Annars var þetta ágætt, mætti kl 7 og búin hálf 4. Reyndar alveg búin á því, þar sem í skólanum sytur maður nánast allan daginn, og pínu breyting að standa svo straight, fyrir utan það hvað við erum alltaf duglegar ;)
Eftir  vinnuna var svo bara haldið heim á leið, og ég ætlaði ða horfa á leiðarljós en svaf það allt af mér í einum KENG í sófanum. Vaknaði svo geðvondari, sem mátti nú ekkert mikið við því að versna. Þurfti að fara að selja klósettpappír og elhúsrúllur fyrir Noregsferðina í Janúar. Mikið sem mér finnst leiðinlegt að banka hjá fólki, maður gæti alveg eins sagt "góða kvöldið, ég er aumingi, já ókei  bæ".

En svona svo ég útskýrir hausinn, þá fórum við mamma í búðina á Laugardaginn, sem ekki væri nú frásögu færandi nema hvað, við fórum svo hjá göngunum og þeir virtust vera að gera sig klára í að sprengja, og við fórum ða bíða því mig langaði svo að sjá. Svo biðum við og biðum, og mamma bara ég nenni ekki að bíða eftir þessu, en ég náði nú að tala hana til og við fórum á planið hjá Skíðaskálanum, gott útsyni, beint á móti. Svo var klukkan e-ð um hálf fimm, og við fórum að giska á tíma sem þeir ætluðu að sprengja á. Enn gafst mamma upp á að bíða og við fórum niðureftir aftur hjá ósnum, og ég sagði e-ð svona í gríni þegar ég var komin með leið á að bíða líka og klukkan var ca korter í fimm, við bíðum til hálf 6 og ekki mínútunni lengur, mamma litl stressaða alltaf bara NEI við bíðum sko ekki svo lengi. Svo var klukkan réttað detta í fimm, og þá hafði gamla það á orði "þeir sprengja kannski klukkan fimm", Auðvitað fannst okkur það þvííkt líklegt. Svo var klukkan hálf sex, og ég fór e-ð að gera grín af mömmu því hun ætlaði sko alls ekki að bíða svona lengi, og ég bara æji mamma tíu mínutur, þu getur ekki neitað mér um það ? Og við héldum áfram að bíða, svo þegar ég sá að klukkan var alveg að verða heimferð, þá tók ég svona miða einhvern, setti hann neðst í miðstöðina og lég hann hanga yfir klukkunni þannig hun sást ekki, og mamma gleymdi sér náttúrlega alveg og hélt áfram, Svo þegar mamma áttaði sig á hvða klukkan var, fóru þeir í burtu með borinn, þá sáum við nátturlega að "þetta var að gerast" og gátum ekki farið strax, það var semsagt sprengt eitthvað rúmlega sex!!!
Við semsagt biðum í einn og hálfan tíma eftir þessarri helvítis sprengingu :D En þetta var þvílíka trukkið maður, þvílíkt snilld að sjá fjallið bara springa, þó það hafi nú ekki verið nema hluti fjallsins.

En svo ég komi mér nú að efninu að útskyra þennan haus, þá sagði ég þessa setningu einmitt á mínútu fresti til tveggja mínutna fresti allan tímann sem við vorum þarna. Mamma var líka alveg hætt að taka mark á mér í endan;)

Annars koma bara skíðin á morgun, og finally. Atomic skólataskan ;) Ég hugsa að hun eigi eftir að gleðja litla hjartað hans Gunna mikið þar sem hann hefur rosalegar áhyggjur af henni =)
Svo hlyt ég að fá pakka frá Sunnu í dag, hann á að fara að koma ;D ein litl spennta sko.

En ég ætla ða láta þetta nægja í bili, kem nú vonandi með eitthvað nýtt fljótlega =)
Hafið það gott ;)
Kv. Kamilla Mjöll Haraldsdóttir

07. nóvember 2006 klukkan 14:16
Kamilla Mjöll Haraldsdóttir
9 athugasemdir
04nóvember

Ţá er komin skýrng fyrir ţessu öllu saman.

Kvöldið.
Ég hef ekki margt að segja eins og er, en veruleikinn beint í æð, er heldur stór skammtur fyrir byrjendur ekki satt?
Ég fór allaveganna í höfuðbeina og spjaldhryggsjöfnun, held það heiti það, reyki og andlegt nudd áðan.
Þá voru augu mín opnuð loks fyrir því hvernig mér í alvörunni líður, en ég ætla ekki að tjá mig um það frekar á bloggsíðu.

Skrítið hvað hún las samt persónuleikann út eins og lestrarbók fyrir fimm ára barn.

En svo ég reyni nú að skrifa eitthvað sem íþyngir ekki öllum, þá er það skúffukaka.
Um helgina hef ég sett markmið mitt á að baka þessa dýrindis skúffuköku, sem ég er reyndar ekki fræg fyrir, en ég verð það aldrei heldur nema að reyna ;)
Búin að vera að hugsa um heita skúffuköku með miklu glassúri sem er heitt og bráðnar uppí manni og svo toppar maður þetta með sopa af ískaldri mjólk.
Hljómar vel ekki satt?

Sótti um fyrir næstu önn 20 einingar. Veit ekkert hvað ég fæ af þeim ;) hehe...
Ég ætla að hætta þessu rugli og fara að slaka á maganum. Eða reyna

Kamilla Mjöll Haraldsdóttir
-Máttur ástarinnar heldur tilverunni saman.
04. nóvember 2006 klukkan 04:37
Kamilla Mjöll Haraldsdóttir
5 athugasemdir
27október

Ég ætla að tileinka þetta kvöld Verkmenntaskólanum á Akureyri.
Þeir í Vma eru sko sannarlega að gera gott mót, RIGHT!!!
Ég er svo pirruð í augnablikinu að ég er SPRINGA!!!
Áhuginn fyrir skólanum var nú ekkert alltof mikill, en ég var rétt í þessu að uppgvöta stór mistök stjórnenda verkmenntaskólans í minn garð.
Þannig er mál með vexti, að á síðustu önn þegar við áttum að sækja um skóla, ákvað ég að vera helvíti klár og sækja um meira en fullan skóla og skrá mig síðan bara úr einhverju ef ég fengi of margar einingar á stundatöfluna. En Svo fékk ég stundatöfluna á Innu áður en skólinn byrjaði, svo bryettist hún, en ég fékk bara 17 einingar, en var að vonast að fá 19-21 einingu. En, svo er ég farin að hugsa aðeins hvað ég á að velja fyrir næstu önn, og ég þarf náttúrlega að taka aðeins tillit til þess að ég verð á skíðunum næstu önn og fer til Noregs og þannig, þess vegna var ég að vonast til að fá sem mest á þessarri önn skiljiði?
En nei, nú sytja 3 einingar eftir þó ég skrái mig í 20 einingar á næstu önn, þeas ef ég næ öllu, sem ég reyndar stórefa með rafmagnsfræðina :| því miður.

Svo fór ég að skoða hvað maður þarf að taka til tæknistúdents, og það er slatti sko
15 ein í Íslensku,
15 ein í Ensku
6 í Sögu
6 í stærðfræði
8 í íþróttum
9 í Náttúruvísindum og svo 12 einingar í 3ja tungumáli eða stæðfræði, mér finnst þetta reyndar smá gruggugt, en á eftir að skoða þetta betur.

Dísess kræst,

Er Noregur, skíðavertíðin og 23 einingar í skóla ekki of mikið?
Endilega koma með ykkar skoðanir á þessu.

En ég fór á konukvöldið í gær með Slingu, Jóa, Vilborgu, Valgerði og systir Snorra ;) og svo kom Kata með mér líka =) Það var rosalega fínt fannst svo mikil snilld þegar þrír gaurar voru að strippa í restina, hló litla af þeim sko. Var reyndar fyrir vonbrigðum að þeir þarna fran&jói-gaurarnir tóku ekki Frank&Jóa, það er nátturlega bara SKILDA að taka það.

Langar bara að þakka stelpunum fyrir kvöldið og ætla að fara að hætta þessu rugli:*

Kv. Kamilla Mjöll Haraldsdóttir

27. október 2006 klukkan 23:57
Kamilla Mjöll Haraldsdóttir
5 athugasemdir
26október

2 mán mínus einn dagur !!

.. og reikniði nú.
Fyrir þá sem ekki eru klárari en þetta í stærðfræði þá eru 2 mánuðir mínus einn dagur í jólin ;)

Annars hef ég rosalega lítið að segja. Ég labbaði í skólann í morgun í ógeðslegum snjó, labbaði meira að segja miklulengrileiðina til að þurfa ekki að kafa snjóinn.
Sakna Sunnulings bara vangefið þroskaheft mikið, hlakka til að komast á skíði og gera eitthvað af viti :D
Verð nú að segja að ég væri nú bara alveg klár í að taka fiskivinnuna á þetta. Ég er stax komin með leið á skólanum. Kannski bara afþví að mér gengur svo þroskaheft illa, og þjáist af almennri vanlíðan og rosalegu strassi.

En nú fer að líða að því að jólauglýsingar fari að gera vart við sig í öllum búðargluggum og gerir fólk alveg snarvitlaust af spenningi sem er svo löngu búin þegar sjálf jólin loksins koma :D hehe slappt.

Ég ætla að hætta þessu rugli, og fara í góóða heima sturtu :D
Hafið það gott, þangað til næst ;)
Kv. Kamillla Mjöll Haraldsdóttir
26. október 2006 klukkan 01:06
Kamilla Mjöll Haraldsdóttir
4 athugasemdir
24október

3 mánađa afmćli :D

Alltaf er maður jafn ógeðlsega duglegur að blogga. Right Ég er nú búin að vera á leiðinni að blogga alla helgina, en aldrei komist í það. Sunnulingurinn minn búin að vera í útlandinu í viku, og gvuuuð hjálpi okkur hérna heima, við eigum eftir að sakna hennar alltof lengi =)
Gulli bara á sjónum en hann fer nú að koma heim bráðum sem betur fer :D

Um helgina átti gamla mín afmæli, varð 42 gellan ;) Í tilefni dagsins fórum við mæðgur og pabbi, eða við feðgin og mamma, til Akureyrar, sem er nátturlega bara once for a life time hjá þeim. En við skelltum okkur í bíó, meira að segja fjögurbíó, sem var geggjað skrítið.
Fórum á Mýrina, og ég verð nú bara að segja að ég var fegin að það var bjart þegar myndin var búin :D En hún var ógeðlsega góð..
-“Hefur þér verið nauðgað? -Jááááá, .. nei takk!”
Djöfulsins snilld sem komu í þessarri mynd;
- “Ertu ekki að grínast í mér... er þetta geit? - Nei þetta er rolla”
- “Gott að þú ert ekki búin ða missa húmorinn - Hvaða húmor?”

Já ég kvet nú bara alla sem ekki eru búnir að sjá þessa mynd að skella sér á hana:D
Svo vildi mamma bara fara á Sub áður en við færum heim, og við vorum þvílíkt að pæla í því afhverju pabbi væri ða koma með, þá var hann bara svona agalega lúmskur og var á leiðinni með okkur á Bautann :D Þvílíkt góður maður, ég fékk meira að segja swissmocka, og þvílíkt sem það var nú gott :D

Svo bara fórum við heim og ég fór til hennar Gerðu, þvílíkir pjakkar sem bræður hennar eru. Svo fórum við bara út að keyra á geggjaða skodanum sem hún Hugga á ;) og hún bara treystir mér og allt ;)
Svo bara fór ég eitthvað að keyra Esther heim sem tók alveg góða tvo tíma. En svo fór ég bara heim í beddið eftir að hafa verið vitni af ansi skrautlegum atburðum

En í dag hélt ég að eyrun á mér myndi detta af. Þegar ég labbaði útum allan bæ til að redda ýmsu dóti fyrir Sunnu mina;) Hvað gerir maðru ekki fyrir hana :D hehe..

Ég hef annars lítið að segja, ákvað að henda inn færlsu herna í tilefni dagsins, jájá gott fólk, ég er búin að vera með bílpróf í 3 heila mánuði :D

Kv. Kamilla Mjöll Haraldsdóttir
24. október 2006 klukkan 01:27
Kamilla Mjöll Haraldsdóttir
2 athugasemdir
16október

Sunnulingur fluttur til útlanda.

Já í nótt flutti Sunnulingurinn minn flutti til útlanda í dag :( Ég sakna hennar ótrúlega mikið strax.

En í annað. Ég þjáist af kvíði/stressi og almennri vanlíðan. Lóð lífisins vega bara ekki jafn þungt fyrir alla.

Annars hef ég ekkert að segja. Ætlaði bara að láta fólk vita að Sunna sé farin út. Það er sko eins gott fyrir fólkið þarna að vera góð við hana :D hehe.

Kv. Kamilla Mjöll Haraldsdóttir
16. október 2006 klukkan 00:26
Kamilla Mjöll Haraldsdóttir
2 athugasemdir

Prófíll

  • Nafn: Kamilla Mjöll Haraldsdóttir
  • Stađur: Ólafsfirđi
  • Kyn: kvk
  • Um mig: Ég heiti Kamilla Mjöll Haraldsdóttir og kem frá stórborginni Ólafsfjörđur, ég nem viđ Verkmenntaskólann á Akureyri. Ég verđ 17 í sumar, og ćtla mér ađ fá bílpróf ţá líka. Ég ćfi skíđi međ Skíđafélagi Ólafsfjarđar, og hef gert ţađ síđan ég var bara smá grjón.

Auglýsing

Textareitur


lyrics - father and son

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Textareitur

Bestu vinir eru systkini sem guđ mundi eftir ađ gefa mér!

Textareitur

Taktu lífinu aldrei of alvarlega ţú kemst hvort sem er ekki lifandi frá ţví !

Fróđleikshorniđ

"Hrćddur flýr ţó engin elti"